STÓRFRÉTTIR!! Ég er genginn í flokkinn á ný!

Kæru vinir, lesendur og óvildarmenn.

 Fyrir nokkrum mánuðum tók ég þá afar erfiðu ákvörðun að segja mig úr Framsóknarflokknum vegna þeirra eilífu hnífstunguárása sem þar áttu sér stað, þeirra illvigu og hörðu innanbúðar deilna sem skiluðu sér yfirleitt í fjölmiðla og fleiri þátta.

 Ég hef nú hinsvegar haft samband við skrifstofu flokksins og gengið í hann á nýjan leik þar sem ég get bara ekki setið lengur fyrir utan þetta félag sem ég gekk í um 17 ára gamall.

 Það er gott að vera kominn aftur.

 Kv.

Snæþór


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Hreiðarsson

Ég vissi alltaf að þú kæmir aftur, hjartanlega velkominn! 

Þetta hefur verið skrýtið án þín. 

(Biðst velvirðingar á væmninni, þetta kemur ekki f.aftur)

Karl Hreiðarsson, 29.8.2008 kl. 16:27

2 Smámynd: Heiðar Birnir

Þetta verður á forsíðu Fréttablaðsins á morgun.  Til hamingju....

Heiðar Birnir, 29.8.2008 kl. 16:37

3 identicon

Þetta gleður mig mjög, velkomin aftur vinur.

kv

Ingi Björn

Ingi Björn (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 21:58

4 identicon

Velkominn aftur.

tek undir með Kalla vissi að þú  myndir rata heim aftur :) 

Ella Þóra (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 12:25

5 Smámynd: Agnar Bragi

Heima er best

Agnar Bragi, 6.9.2008 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband