Skynsemi Sigmundar og Framsóknar

Daginn

 Ég fagna innilega þeirri ákvörðun Framsóknar að hafa ákveðið að taka sér lengri tíma í að fara yfir málefnasamninginn. Hér að neðan er smá dæmisaga, nú eða líking, af því sem gerðist í gær:

Segjum sem svo að þú sért að kaupa þér fasteign.:

- Þú færð afhentan kaupsamning kl. 14:00 og þér er sagt að þú eigir að skrifa undir strax vegna þess að það eigi að klára afsalið klukkan 18:00 fyrir framan styttuna af Jóni Sigurðssyni.

- Þú vilt nú helst kíkja aðeins á samninginn eðlilega þannig að þú blaðar í honum og sérð að það kemur hvergi fram hvernig greiðslur eigi að fara fram, það stendur ekki í honum hvaða hús þú varst að kaupa, það stendur ekki í honum að það séu útveggir á húsinu.

- Þú ert nú ekki alveg til í þetta og segir umboðsmönnunum þínum(les. færum hagfræðingum) að þú viljir taka þér svolítinn tíma til að fara yfir þetta skoða það með ráðgjöfum þínum.

Dæmið hér að ofan er nokkuð nákvæm lýsing á því sem gerðist í gær. Hefðir þú skrifað undir kaupsamninginn, sérstaklega þar sem hagur þjóðarinnar er í húfi?

 Kv.

S.


mbl.is Ósætti um aðgerðirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru 14.000 manns atvinnulausir 2006?

Geir... ekki meir.

 Spurning að Geiri kallinn hafi samband við þessa 14.000 og segi þeim að þeir séu bara í svipaðri stöðu og 2006.


mbl.is Gera of mikið úr vandanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Táragasi beitt gegn ungmennum!

Nei ekki í dag en hinsvegar er það rangt að síðasta skiptið sem táragasi var beitt hafi verið 1949 á Austurvelli og svo 1959 á Siglufirði.

Samkvæmt grúski sem tók mig 7 mínútur var táragasi síðast beitt um áramótin 1962-1963 í miðbænum. Ástæðan var sú að áramótagleði ungmenna fór stórkostlega illa úr böndunum í höfuðborginni sem endaði með þessum ósköpum.

 Sjá nánar hér http://www.timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1747371 Flettið svo á 3. janúar 1963 og á baksíðuna (nr. 24)

Verð að segja að íslenskir fjölmiðlar og sagnfræðingar hafi staðið sig stórkostlega varðandi þetta mál. Svei þeim og húrra fyrir undirrituðum.

 Kv.

Snæþór 


Ríkisstjórnin fallin!

..jahh, hún er allavega komin með guluna ef við miðum við þetta myndskeið sem fylgir fréttinni.

 Spurning hvort einhver kíki á hann Össur, hann virðist ekki vera alveg heilbrigður....


mbl.is Ríkisstjórnin kynnt í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð minn góður, þau voru ekki að grínast..!

Haldið ykkur fast. Hrunið verður hraðara og verra en búist var við og skellurinn eftir því ofsafengnari.

 Fátt meira um það að segja.


mbl.is Munu leita eftir endurskoðun á IMF-samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóð dagsins - 3 Vorið

Vorið

 

Það var eins og vindurinn hefði farið í frí

Sólargeislar móðurinnar stráðu sér yfir andlit fólksins

Flóran vaknaði til lífsins og söngur fuglanna heyrðist úr suðri

 

Þá élaði, stórflyksur hvítfreðnar dundu af himnum ofan

Haustið skók sálartetur mannfólksins og hristi upp í sölnuðum laufum

Þetta var stutt sumar kvað við úr bæjarhólum.

 

Dauði.

 

Kv.

S


Ljóð dagsins 2 - Afmælisbarnið Solla

Til hamingju þú, þú lagðir okkur lið

við að leggja þjóðfélagið á hlið.

Þú upphefur sjálfið og treystir þér best

til að gera betur, en við flest.

 

Í dag þú fagnar þínum gebursdag

þér til heiðurs ég sem því lag.

Fjöldi áranna mér er þó hulinn

enda á hjartanu, löngu kulinn.

 

Já mín Solla, þú frystir mitt stolt

þitt jafnaðarhjarta virðist holt.

Að innan sem utan ég sé enga hlýju

ég þrái þú fáir ei umboð að nýju.

 

Með þér hafa jólasveinarnir þrifist

öll tólf, þið hafið rifist.

Björgvin og Árni og Davíð og Geir

já og Solla, ég vil ykkur ei meir!

 

En nú árið er liðið í aldanna rás

þið hnýtt hafið okkur á skuldanna bás.

Farið með góðu, farið með illu

og hættið að lifa í sjálfselsku villu.

 

S.

 


Ljóð dagsins 1 - Skeptíski puttaferðalangurinn

 

Þú komst inn í líf mitt, ég beið eftir þér

við veginn langan.

Þú bauðst mér far á glófextum fáki

ég fann nýbíla angan.

 

Mér leist ekki á þig, því auga þitt blikaði

mitt hjarta varð þvalt.

Mér varð þó úr ráði að þiggja þitt sæti

því úti var kalt.

 

En þú varst allt í lagi og ferðin var góð

við brunuðum saman.

En á endanum kom ég svo heim til þín amma

það var rosa gaman.

 

Góðar stundir.

S.


Don John...moggi?

Koma svo... þetta hlýtur að eiga vera Don Juan.. nema þetta sé nýtt verk, byggt á lífsskeiði Don Johnson...
mbl.is Misjafnir dómar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Því miður er kjarkur stjórnarliða ekki mikill

Því miður er flokksaginn það mikill ennþá að þetta verður ekki samþykkt. Hinsvegar er það álitamál hvort ekki eigi að hafa kjör sem þetta nafnlaust... þá myndi tilllagan fljúga í gegn!
mbl.is Vantrauststillaga komin fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband